Fara í efni

Aðskotahlutur í vínflösku

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Matvælastofnun varar við neyslu á einni framleiðslulotu af Sancerre hvítvíni sem Coca Cola Europacific Partners flytur inn vegna aðskotahlutar (áttfætla) sem fannst í einni flösku. Fyrirtækið hefur í samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur innkallað vöruna.

Innköllunin á eingöngu við um eftirfarandi framleiðslulotu:

  • Vöruheiti: Sancerre
  • Geymsluþol: Engin geymsluþolsmerking
  • Lotunúmer: L4021
  • Nettómagn: 750 ml
  • Framleiðandi: Franck Millet
  • Framleiðsluland: Frakkland
  • Innflutningsfyrirtæki: Coca Cola Europacific Partners, Stuðlahálsi 1, 110 Reykjavík
  • Dreifing: Vínbúðir ÁTVR og Heimkaup

hvítvín

Neytendum sem keypt hafa vöruna er bent á að neyta hennar ekki, farga  eða skila henni til verslunarinnar gegn endurgreiðslu.

Ítarefni:

 

 


Getum við bætt efni síðunnar?