Fara í efni

Aðskotahlutur í smákökudeigi

Matvælastofnun varar við neyslu á öllum framleiðslulotum af jólasmákökudeigi, Þristakökum með vörumerkinu Evu Laufey sem Myllan framleiðir vegna málmloks sem fannst í einni vöru. Varan hefur verið innkölluð af fyrirtækinu í samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkurborgar.

Upplýsingar um vöru sem innköllunin einskorðast við

  • Vörumerki: Eva Laufey
  • Vöruheiti: Jólasmákökudeig - Þristakökur
  • Nettómagn: 500 g
  • Strikamerki: 5690568019863
  • Lotur: Allar lotur
  • Heiti og heimilisfang fyrirtækis sem innkallar vöru: Myllan, Blikastaðavegi 2-8, 112 Reykjavík.
  • Dreifing: Verslanir Hagkaupa og Bónuss og Kaupfélag Skagfirðinga á Sauðárkróki.

Neytendur sem eiga umrædda vöru eru beðnir um að neyta hennar ekki heldur farga henni. Einnig
er hægt að skila henni í versluninni þar sem hún var keypt eða hjá Myllunni.

Ítarefni

 


Getum við bætt efni síðunnar?