Aðskotahlutur í skinku
Innkallanir -
03.11.2026
Matvælastofnun varar við neyslu á einni framleiðslulotu af Skinku 80 frá Stjörnugrís hf. vegna aðskotarhlutar (málmbiti) sem fannst í vörunni. Fyrirtækið hefur innkallað vöruna í samráði við Matvælastofnun.
Eingöngu er verið að innkalla eftirfarna framleiðslulotu:
- Vörumerki: Stjörnugrís
- Vöruheiti: Skinka 80
- Lotunúmer: 6002-26286
- Strikamerki: 5694230203031
- Framleiðandi: Stjörnugrís hf., 162 Saltvík, Kjalarnesi
- Dreifing: Bónus, Krónan

Neytendur eru beðnir um að neyta ekki vörunnar. Neytendur sem keypt hafa Skinku 80 með
þessu rekjanleikanúmeri eru beðnir um að skila vörunni í viðkomandi verslun.
Ítarefni
- Fréttatilkynning frá Stjörnugrís hf.
- Listi Matvælastofnunar yfir innkallanir
- Matvælastofnun á facebook