Fara í efni

Aðskotahlutur í pylsum

Matvælastofnun varar við neyslu á einni framleiðslulotu af Vínarpylsum sem Sláturfélag Suðurlands svf. framleiðir vegna aðskotahlutar sem fannst í vörunni. Fyrirtækið hefur í samráði við Matvælastofnun innkallað alla framleiðslulotuna í varúðarskyni.

Eingöngu er verið að innkalla eftirfarna framleiðslulotu:

  • Vörumerki: SS
  • Vöruheiti: Vínarpylsur 10 stk.
  • Framleiðandi: Sláturfélag Suðurlands svf, Fosshálsi 1, 110 Reykjavík.
  • Framleiðslulota: 05-273 (Síðasti notkunardagur: 26.10´25).
  • Dreifing: Bónus, Krónan, Hagkaup, Nettó, Kjörbúðin, Krambúðin, 10-11, Extra, Prís,Fjarðarkaup, Melabúðin og öðrum verslunum 

Neytendur sem keypt hafa vöruna skulu ekki neyta hennar heldur farga eða skila í næstu verslun.

Ítarefni

 


Getum við bætt efni síðunnar?