Fara í efni

Aðskotahlutur í orkustykki

Matvælastofnun varar við neyslu á einni framleiðslulotu af Corny 0% Added sugar Chocolate Multi pack 6x20g sem Innnes ehf. flytur inn vegna málmhluta sem fannst í vöru. Fyrirtækið hefur í samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkurborgar innkalla vöruna.

Eingöngu er verið að innkalla eftirfarandi framleiðslulotu:

  • Vörumerki: Corny
  • Vöruheiti: 0% Added sugar Chocolate Multi pack 6x20g
  • Nettómagn: 120 g
  • Strikamerki: 4011800593063
  • Best fyrir dagsetning: 10.09.2027
  • Innflytjandi: Innnes ehf., Korngörðum 3, 104 Reykjavík
  • Dreifing: Plúsmarkaðurinn, Hlíðarkaup, Fjarðarkaup, Corner Shop.

Neytendur sem eiga umrædda vöru eru beðnir um að neyta hennar ekki heldur farga henni. Einnig
er hægt að skila henni í versluninni þar sem hún var keypt og fá hana bætta.

Ítarefni

 

 


Getum við bætt efni síðunnar?