Fara í efni

Aðskotahlutur í köku

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Matvælastofnun varar við neyslu á  einni lotu af Coconut & cashew soft  keto köku frá Frank & Oli sem fyrirtækið Multi-Made ehf flytur inn. Kökurnar hafa verið innkallaðar vegna aðskotahluts (plast/gler) sem fannst í einni kökunni. Fyrirtækið hefur í samráði við heilbrigðiseftirlit Garðarbæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnarnes innkallað vöruna í varúðarskyni og sent út fréttatilkynningu.

Innköllunin á eingöngu við eftirfarandi framleiðslulotu:

  • Vörumerki: Frank&Oli.
  • Vöruheiti: Keto Coconut & Cashew Soft Cookie.
  • Strikamerki: 5900316552239.
  • Best fyrir: 27-4-2023.
  • Nettómagn: 50g
  • Dreifing: Hagkaups og Bónusverslanir.

keto kaka

Neytendum sem keypt hafa vöruna er bent á að skila henni í þeirri verslun sem hún var keypt gegn endurgreiðslu eða skipti á samskonar vöru.

Ítarefni

 

 


Getum við bætt efni síðunnar?