Fara í efni

Aðskotahlutur í kanilkökublöndu

Matvælastofnun varar við tveimur framleiðslulotum af Kanilsnúðaköku frá Kornax vegna plastbita sem er aðskotahlutur í vörunni. Fyrirtækið hefur í samráði við heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur innkallað vöruna. Plastbitinn var í kanilsykurpoka sem fylgdi með kökublöndunni.

Eingöngu er verið að innkalla eftirfarnar framleiðslulotur:

  • Vörumerki: Kornax
  • Vöruheiti: Kanilsnúðakaka
  • Nettómagn: 475g
  • Strikamerki: 5690453977919
  • Best fyrir dagsetning: 18.08.2026 og 10.11.2026
  • Lotunúmer: 15012534403 og 15012546102
  • Framleiðandi: Valsemøllen A/S, Esbjerg, Danmörku fyrir Lífland ehf.
  • Innflutningsfyrirtækið: Lífland ehf., Brúarvogur 1-3, 104 Reykjavík.
  • Dreifing: Krónan, Bónus, Hagkaup, Stórkaup, Fjarðarkaup, IKEA, Kaupfélag vestur Húnvetninga, KaupfélagSkagfirðinga, Hlíðarkaup, Melabúðin, Verslun Einars Ólafssonar, Hraðbúðin Hellissandi, Víkurval og Verslunin Fjölval.

Kaupendur skulu ekki neyta hennar heldur farga eða skila til verslunar Líflands í Korputorgi í Reykjavík.

Ítarefni

 

 


Getum við bætt efni síðunnar?