Aðskotahlutur í hnetublöndu
Innkallanir -
16.10.2026
Matvælastofnun varar við neyslu á einni framleiðslulotu af Bónus Hnetublöndu með trönuberjum og pistasíum vegna aðskotahluts (trábita) sem fannst í einum poka. Fyrirtækið Aðföng hefur í samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur innkallað vöruna.
Eingöngu er verið að innkalla eftirfarna framleiðslulotu;
- Vörumerki: Bónus
- Vöruheiti: Hnetublanda með trönuberjum og pistasíum
- Nettómagn: 400g
- Strikamerki: 5694311960501
- Best fyrir dagsetning: 15.05.2027
- Lotunúmer: 150901
- Framleiðandi: Pakkað af H-Berg í Hafnarfirði
- Dreifing: Verslanir Bónuss

Neytendur sem hafa keypt umrædda vöru eru beðnir um að hætta notkun hennar og farga en
einnig má skila henni í versluninni þar sem hún var keypt gegn fullri endurgreiðslu.
Ítarefni
- Fréttatilkynning frá Aðföngum
- Fréttatilkynning frá Heilbrigðiseftirlitinu
- Listi Matvælastofnunar yfir innkallanir
- Matvælastofnun á facebook