Fara í efni

Aðskotahlutur í aspasdós

Matvælastofnun varar við notkun á einni best fyrir dagsetningu af ORA aspasbitum í dós vegna þess að aðskotahlutur fannst. ÓJ&K-Ísam ehf., að höfðu samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur, hefur stöðvað sölu og innkallað vöruna frá neytendum.

Upplýsingar um vöru sem innköllunin einskorðast við

  • Vörumerki: ORA
  • Vöruheiti: Aspas, í bitum (1/2 dós)
  • Strikamerki: 5690519017900
  • Nettómagn: 411 g
  • Best fyrir dagsetning: 05.07.2027
  • Framleiðsluland: Bandaríkin
  • Framleiðandi: Honee Bear Canning
  • Heiti og heimilisfang fyrirtækis sem innkallar vöru 
    ÓJ&K-Ísam, Blikastaðavegi 2-8, 112 Reykjavík.
  • Dreifing (verslanir)
    Verslanir Haga (Hagkaup, Bónus), Extra, Fjarðarkaup, Jónsabúð, Kaupfélag V-Húnvetninga,
    verslanir Samkaupa, Verslunin Hlíðarkaup, Krónan, Melabúðin, Prís.

Leiðbeiningar til neytenda:

Neytendur sem hafa keypt umrædda vöru eru beðnir um að hætta notkun hennar og farga en einnig má skila henni í versluninni þar sem hún var keypt. Ef einhverjar spurningar vakna eða fyrir nánari upplýsingar vinsamlega hafið samband við ÓJ&K-Ísam í síma 535 4000 eða með því að senda tölvupóst á ojk-isam@ojk-isam.is. 

Ítarefni:

 


Getum við bætt efni síðunnar?