Fara í efni

Aðskotahlutir í kexi fyrir börn

Matvælastofnun hefur fengið upplýsingar um innköllun á Gerber biscuits Arrowroot ungbarnakexi vegna aðskotahluta sem hafa fundist. Innflytjandi Smartco ehf. hefur í samráði við heilbrigðiseftirlit Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnarnes (HEF) innkallað vöruna.

Neytandi hafði samband við heilbrigðiseftirlitið með áhyggjur eftir að hafa lesið um innköllunina á bandarískum miðlum.

Innköllunin gildir fyrir eftirfarandi framleiðslulotur:

  • Vöruheiti: Biscuits arrowroot
  • Vörumerki: Gerber
  • Framleiðandi: Nestlé S.A.
  • Lotunúmer: 5198565504, 5202565504, 5203565504, 5204565504, 5205565504, 5209565504, 5210565504, 5211565504, 5233565504, 5238565504, 5239565504, 5239565505, 5240565505, 5245565505, 5246565505, 5251565505, 5252565505, 5253565505, 5254565505, 5258565505, 5259565505.
  • Best fyrir dagsetning: Allar dagsetning á tímabilinu16. október 2026 til 16. desember 2026.
  • Nettó þyngd: 155g
  • Geymsluskilyrði: Þurrvara
  • Strikanúmer: 015000005962
  • Dreifing: Verslun Kosts, Miðhrauni 2, 210 Garðabæ og í netverslun: Kostur.is.

Neytendur sem keypt hafa vöruna skulu ekki neyta hennar, farga eða skila í verslun.

Ítarefni:

 

 


Getum við bætt efni síðunnar?