Fara í efni

Aðskotaefni yfir mörkum í kexi

Matvælastofnun varar við neyslu á Parle-G Orginal Gluco biscuits kexi sem Lagsmaður ehf. flytur inn vegna aðskotaefni sem fundust í vörunni. Fyritækið hefur í samráði við Heilbrigðiseftirlit Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnarness (HEF), innkallað kexið.

Tilkynning um innköllun kom til Íslands í gegnum RASFF hraðviðvörunarkerfi Evrópu um hættuleg matvæli og fóður á markaði.

Ástæða innköllunarinnar er að tvö aðskotaefni, 3-mónóklórprópan-1,2-díól (3-MCPD) og glýsidýlfitusýruesterar (e. glycidyl fatty acid esters, GE), mældust yfir leyfilegum hámarksgildum.

Eingöngu er verið að innkalla eftirfarna framleiðslulotu: 

  • Framleiðsluland: Indland
  • Framleiðandi: Parle Products Pvt. Ltd
  • Vörumerki: Parle-G
  • Vöruheiti: Parle-G Original Gluco Biscuits
  • Nettómagn: 79,9 g
  • Lotunúmer: LM00018430
  • Best fyrir: 17.12.2026
  • Geymsluskilyrði: Þurrvara
  • Strikamerki: 8901719101045
  • Dreifing: Varan var seld í verslun Fiska.is, Nýbýlavegi 6, 200 Kópavogi.

Neytendur sem eiga umrædda vöru eru beðnir um að neyta hennar ekki, heldur farga henni eða skila henni í verslun Fiska.is, Nýbýlavegi 6, 200 Kópavogi.

Ítarefni


Getum við bætt efni síðunnar?