Fara í efni

Aðskotaefni yfir mörkum í kexi

Matvælastofnun varar við neyslu á Wasabi rice cracker sem Lagsmaður ehf/Fiska.is flytur inn vegna aðskotarefna glýsidýl fitusýruestera sem fundust í vörunni. Fyrirtækið hefur innkallað af markaði og tekið úr verslun í samráði við Heilbrigðiseftirlit Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnarnes ( HEF).

Tilkynningin kom til Íslands í gegnum evrópska hraðviðvörunarkerfið RASFF um hættuleg matvæli og fóður á markaði.

Eingöngu er verið að innkalla eftirfarnar framleiðslulotur:

  • Framleiðsluland: Holland
  • Vörumerki: Golden Turtle
  • Vöruheiti: Wasabi rice cracker
  • Best fyrir: 02/02/27 - 24/02/27 - 19/03/27 - 18/08/27 - 05/06/27
  • Nettómagn: 125gr
  • Geymsluskilyrði: Þurrvara
  • Framleiðandi: Heuschen & Schrouff Oriental Foods Trading B.V.

Þeir sem eiga umrædda vöru ennþá til eru beðnir um að neyta hennar ekki, og farga eða skila í verslun Fiska.is, Nýbýlavegi 6, 200 Kópavogur.

Ítarefni


Getum við bætt efni síðunnar?