Fara í efni

Aðskotaefni yfir mörkum í fæðubótarefnum

Matvælastofnun varar við neyslu á tveimur tegundum af fæðubótarefnum af vörumerkinu Guli miðinn frá Bretlandi sem Heilsa ehf. flytur inn vegna aðskotaefnisins pyrrolizidine alkalóíða sem mældist yfir mörkum. Fyrirtækið hefur innkallað vörurnar í samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur.

Eingöngu er verið að innkalla eftirfarnar framleiðslulotur:

  • Vörumerki: Guli miðinn
  • Vöruheiti: Husk
  • Lotunúmer og best fyrir dagsetningar: Lota 25/16/11, best fyrir 12.06.2028; lota 25/24/11,
    best fyrir 09.07.2028; lota 25/35/15, best fyrir
    16.9.2028; lota 25/50/17, best fyrir 23.4.2029.
  • Strikamerki: 5690684004446
  •  
  • Vörumerki: Guli miðinn
  • Vöruheiti: Colon Cleanser
  • Lotunúmer og best fyrir dagsetningar: Lota 25/5/59, best fyrir 23.04.2028; lota 061225,
    best fyrir 10.09.2028.
  • Strikamerki: 5690684000868
  • Framleiðandi: Lifeplan
  • Framleiðsluland: Bretland
  • Innflytjandi: Heilsa ehf., Skarfagarðar 2, 104 Reykjavík
  • Dreifing: Austurbæjarapótek, Apótek Garðabæjar, Borgar Apótek, Bæjarapótek, Lyfja, Krónan, Hagkaup,
    Lyfjaver, Heilsuver, Apótekarinn, Lyfsalinn, Fjarðarkaup, Hlíðarkaup, Kaupfélag Vestur –
    Húnvetninga, Siglufjarðarapótek, Þín verslun Kassinn, Urðarapótek

Neytendur sem hafa keypt umræddar vörur eru beðnir um að hætta notkun þeirra og farga en
einnig má skila þeim í versluninni þar sem þær voru keyptar eða hjá Heilsu ehf.

Ítarefni


Getum við bætt efni síðunnar?