Fara í efni

Aðskotaefni í pönnukökublöndu

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Matvælastofnun vill vara við einni framleiðslulotu af Amisa lífrænni pönnukökublöndu sem Heilsa ehf. flytur inn vegna aðskotaefna (trópanbeiskjuefni; atrópín og skópalamín) sem greindust yfir mörkum. En þessi efni geta fundist náttúrlega í vissum tegundum af jurtum. Fyrirtækið hefur í samráði við heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur innkallað vöruna.

Einungis er verið að innkalla eftirfarna framleiðslulotu:

  •  Vörumerki: Amisa
  • Vöruheiti: Organic Pancake Mix
  • Geymsluþol: Best fyrir Dagsetning: 30.08.2023
  • Lotunúmer: 229597
  • Nettómagn: 2*180 g
  • Strikamerki: 5032722313743
  • Framleiðandi: Windmill Organics Ltd.
  • Framleiðsluland: Þýskaland
  • Heiti og heimilisfang fyrirtækis sem innkallar vöru: Heilsa ehf., Bæjarflöt 1-3, 112 Reykjavík.
  • Dreifing: Fjarðarkaup, Melabúðin, Heilsuhúsið Kringlunni, verslanir Samkaupa: Nettó og Kjörbúðin (Siglufirði og Djúpavogi).

Viðskiptavinir eiga ekki að neyta vörunnar heldur farga eða skila vörunni í þá verslun sem hún var keypt.

Ítarefni:


Getum við bætt efni síðunnar?