Fara í efni

Aðskotaefni í hrísgrjónum

Matvælastofnun varar við neyslu á einni framleiðslulotu af  Veribest hrísgrjónum sem Garri ehf. flytur inn vegna leysiefna (MAOH) sem fundust í vörunni. Hrísgrjónin voru seld til stóreldhúsa og í eina verslun. Fyrirtækin hafa innkallað vöruna í samráði við heilbrigðiseftirlitssvæði.

Eingöngu er verið að innkalla eftirfarna framleiðslulotu:

  • Vöruheiti: Basmati hrísgrjón
  • Vörumerki: Veribest
  • Innflytjandi: Garri
  • Framleiðandi: Wiik & Co
  • Pökkunaraðili og söluaðili: Nándin, Austurgötu 47, 220 Hafnarfjörður
  • Best fyrir dagsetning: 23.09.2026
  • Nettó þyngd: 800g
  • Geymsluskilyrði: Þurrvara
  • Dreifing: Nándin 

Varan var seld í 800g pokum á tímabilinu 2. september 2025 til 25. janúar 2026.

Viðskiptavinum er bent á að farga vörunni eða skila til Matarbúðarinnar Nándin Austurgötu 47, 220 Hafnarfirði, matarbudin@matarbudin.is, s. 4701300.

Ítarefni

 


Getum við bætt efni síðunnar?