Fara í efni

3-MCDP og glycidyl fitusýrur esterar í núðlum

Matvælastofnun varar við neyslu á Buldak núðlum sem Dai Phat ehf. flytur inn vegna aðskotaefna. Fyrirtækið hefur innkallað vöruna í samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur.

Tilkynningin kom til Íslands í gegnum RASFF evrópska hraðviðvörunarkerfi um hættuleg matvæli og fóður.

Eingöngu er verið að innkalla eftirfarandi framleiðslulotu:

  • Vörumerki: Buldak
  • Vöruheiti: Spicy ramen hot chicken flavour cup (instant noodles carbonara flavour)
  • Best fyrir dagsetningu: 28/08/2026
  • Strikamerki: 4045802737972 – Lota: H W3
  • Nettómagn: 80g
  • Framleiðandi: Samyang foods co., ltd.
  • Framleiðsluland: Suður Kórea
  • Innflutningsfyrirtæki: Dai Phat Iceland ehf., Faxafen 14, 108 Reykjavík.
  • Dreifing: Dai Phat Asian supermarket, Faxafen 14, 108 Reykjavík

Neytendur sem hafa keypt vöruna er bent á að neyta hennar ekki og farga eða skila henni  til verslunarinnar.

Ítarefni

 


Getum við bætt efni síðunnar?