Fara í efni

Útgáfa rekstrarleyfis vegna fiskeldis til Fjallalax ehf. að Hallkelshólum, Grímsnesi

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Matvælastofnun hefur veitt Fjallalax ehf. rekstrarleyfi til fiskeldis að Hallkelshólum, í Grímsnesi. Matvælastofnun auglýsti tillögu að rekstrarleyfi á vef stofnunarinnar þann 6. desember 2021 og var frestur til að skila inn athugasemdum til 3. janúar 2022.

Fjallalax sótti um nýtt rekstrarleyfi vegna 100 tonna hámarkslífmassa í seiða- og mateldi á lax og bleikju að Hallkelshólum. Umsókn um nýtt rekstrarleyfi var móttekin þann 12. apríl 2021. Úttekt starfsstöðvar hefur farið fram og staðfestir Matvælastofnun gildistöku rekstrarleyfis Fjallalax ehf. FE-1186 að Hallkelshólum en starfsemin er einnig háð starfsleyfi Umhverfisstofnunar.

Framkvæmd fyrirtækisins fór í gegnum mat á umhverfisáhrifum í samræmi við lög um mat á umhverfisáhrifum.

Heimilt er að kæra ákvörðun Matvælastofnunar um útgáfu rekstrarleyfisins til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og er kærufrestur einn mánuður frá birtingu þessarar auglýsingar.

Ítarefni


Getum við bætt efni síðunnar?