Tillaga að rekstrarleyfi Fjallalax til fiskeldis að Hallkelshólum í Grímsnesi
Frétt -
06.12.2021
Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.
Matvælastofnun hefur unnið tillögu að rekstrarleyfi fyrir Fjallalax ehf. (áður Fjallableikja ehf.) vegna fiskeldis á landi að Hallkelshólum í Grímsnesi. Um er að ræða nýtt rekstrarleyfi þar sem hámarkslífmassi miðast við 100 tonn af laxi og bleikju til seiða- og matfiskeldis.
Athugasemdir við tillöguna skulu vera skriflegar og sendar Matvælastofnun á mast@mast.is. Frestur til að skila inn athugasemdum er til 03. janúar 2022