Fara í efni

Skil á gögnum um búfjáreign, fóður og landstærðir

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Matvælastofnun hefur sent öllum þeim sem skráðir eru eigendur eða umráðamenn búfjár í gagnagrunninum Bústofni bréf þar sem minnt er á að samkvæmt lögum um búfjárhald nr. 38/2013 skulu umráðamenn búfjár skila árlegri haustskýrslu fyrir 20. nóvember n.k. um búfjáreign, fóður og landstærðir.

Með nýjum lögum um búfjárhald var heimild veitt til að eingöngu verði um rafræn skil að ræða og hefur því verið horfið frá notkun haustskýrslu eyðublaða og þess í stað tekin upp rafræn skil á vefslóðinni www.bustofn.is.

Sérstaklega er minnt á að hestar teljast til búfjár og skulu eigendur hesta ganga frá haustskýrslu eins og aðrir búfjáreigendur fyrir 20. nóvember n.k.

Búfjáreigendur eru hvattir til að ganga frá skilum á skýrslum fyrir 20. nóvember og komast þannig hjá óþarfa kostnaði sem hlýst af  heimsóknum eftirlitsmanna vegna vanskila á skýrslum.

Ítarefni


Getum við bætt efni síðunnar?