Fara í efni

Ómerktir ofnæmisvaldar í IKEA súkkulaði

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Matvælastofnun hefur fengið upplýsingar frá Heilbrigðiseftirliti Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis um innköllun á 6 tegundum af súkkulaði. Það er gert vegna vanmerktra ofnæmis- og óþolsvalda.  Vörurnar gætu innihaldið heslihnetur og/eða möndlur.  Þeir sem eru með ofnæmi fyrir slíku gætu fundið fyrir einkennum eftir neyslu vörunnar en fyrir aðra neytendur er hún hættulaus.  Allar dagsetningar hafa verið innkallaðar.

Súkkulaðitegundirnar 6 eru eftirfarandi:

  • Choklad Lingon & Bláber 180 g
  • Choklad Ljus 100 g.
  • Choklad Nöt UTZ 100 g.
  • Godis Chokladkrokant 450 g
  • Godis Chokladrán 168 g
  • Chokladkrokant Bredbar 400
     
  • Lotunúmer:  Allar dagsetningar
  • Sölu- og dreifingaraðili:  IKEA, Kauptúni 4. 210 Garðabæ
  • Dreifing:  Verslun IKEA

Nánari upplýsingar veitir þjónustuver IKEA í síma 520-2500 og á www.IKEA.is

Ítarefni

Frétt uppfærð 08.09.16


Getum við bætt efni síðunnar?