Fara í efni

Leiðbeiningar um viðbrögð vegna veikra fugla og gruns um fuglaflensu

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Lifandi veikir villtir fuglar í nærumhverfi:

Ef vart verður við veika ósjálfbjarga fugla í nærumhverfi manna er möguleiki á að fuglinn sé veikur vegna smits af fuglaflensuveirunni. Þó litlar líkur séu taldar á smiti yfir í mannfólk eða önnur dýr þá mælir Matvælastofnun með að varúðar og smitgátar sé gætt. Ekki skal handleika fugla sem mögulega eru taldir vera smitaðir af fuglaflensu, án tilskilins hlífðarbúnaðar.

Samkvæmt lögum um velferð dýra (nr. 55/2013) þá bera sveitarfélög ábyrgð á að brugðist sé við að koma villtum dýrum í neyð til aðstoðar eða sjá til þess að þau séu aflífuð. Þeim sem verða varir við lifandi veika villta fugla í neyð í nærumhverfi manna ættu að:

  • Tilkynna strax um það til viðkomandi sveitarfélags. Sveitarfélaginu er skylt að bregðast við út frá dýravelferðarsjónarmiðum. Helst er mælt með að sveitarfélag kalli til dýralæknir til aflífunar á sjáanlega veikum dýrum eða að dýrin verði aflífuð með öðrum mannúðlegum hætti, sem ekki eykur áhættu á dreifingu á smitefni (skot, höfuðhögg eða blóðgun gæti aukið smitdreifingu). 
  • Ef sveitarfélagsskrifstofur eru lokaðar getur almenningur beint erindinu til lögreglu.
  • Boð eftir dýralækni til hjálpar villtu dýri í neyð þarf að koma frá sveitarfélagi eða lögreglu, nema ætlunin sé að greiða sjálfur fyrir útkallið

Sjá annars almennar leiðbeiningar Matvælastofnunar um slösuð, veik eða bjargarlaus dýr 

 Dauðir villtir fuglar og hræ:

Þegar villtur fugl finnst dauður, skal hafa samband við MAST, nema ef augljóst er að hann hafi drepist af slysförum.  Best er að tilkynna með því að skrá ábendingu á heimasíðu stofnunarinnar www.mast.is, en líka er hægt að hringja í síma 5304800 á opnunartíma eða senda tölvupóst á netfangið mast@mast.is. MAST metur hvort taka skuli sýni úr fuglinum. Ef taka þarf upp dauðan fugl skal það gert með einnota hönskum og hann settur í plastpoka eða með því að stinga hendi í plastpoka og taka fuglinn upp með pokanum og draga pokann svo yfir fuglinn og loka fyrir. 

Á undanförnum dögum hefur Matvælastofnun borist mikið af tilkynningum um dauða villta fugla víða á landinu. Stofnunin fer yfir allar ábendingar og metur hvort ástæða sé til að taka sýni. Matið byggir m.a. á staðsetningu, fuglategund og tíma frá því fuglinn fannst.

Fólki er bent á að gæta ítrustu sóttvarna ef það þarf að handleika villta fugla, hvort sem þeir eru dauðir eða lifandi. Hræ skulu annað hvort látin liggja óhreyfð eða tekin í plastpoka án þess að þau séu snert með berum höndum.

Það skal tekið fram að engin dæmi eru um að fólk smitist af fuglaflensu við neyslu eggja eða fuglakjöts, hvort sem er af alifuglum eða villtum fuglum.

Frekari upplýsingar er hægt að nálgast á heimasíðu Matvælastofnunar um fuglaflensu meða annars undir spurningar og svör þar.


Getum við bætt efni síðunnar?