Fara í efni

Útgáfa rekstrarleyfis Rifóss til fiskeldis á Kópaskeri

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Matvælastofnun hefur veitt Rifós hf. rekstrarleyfi til fiskeldis að Röndinni á Kópaskeri. Matvælastofnun auglýsti tillögu að rekstrarleyfi á vef stofnunarinnar þann 26. febrúar 2021 og var frestur til að skila inn athugasemdum til 26. mars 2021.

Rifós hf. sótti um nýtt rekstrarleyfi vegna 400 tonna hámarkslífmassa í seiðaeldi á laxi að Röndinni á Kópaskeri. Umsókn um nýtt rekstrarleyfi var móttekin þann 1. desember 2020. Úttekt starfsstöðvar hefur farið fram og staðfestir Matvælastofnun gildistöku rekstrarleyfis Rifós hf. FE-1168 að Röndinni á Kópaskeri en starfsemin er einnig háð starfsleyfi Umhverfisstofnunar.

Framkvæmd fyrirtækisins fór í gegnum mat á umhverfisáhrifum í samræmi við lög um mat á umhverfisáhrifum.

Heimilt er að kæra ákvörðun Matvælastofnunar um útgáfu rekstrarleyfisins til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og er kærufrestur einn mánuður frá birtingu þessarar auglýsingar.

Ítarefni


Getum við bætt efni síðunnar?