Fara í efni

Útgáfa rekstrarleyfis til fiskeldis í Reyðarfirði

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Matvælastofnun hefur veitt Löxum eignarhaldsfélagi ehf. rekstrarleyfi til fiskeldis í Reyðarfirði í samræmi við lög um fiskeldi. Matvælastofnun auglýsti tillögu að rekstrarleyfi á vef stofnunarinnar þann 6. apríl 2020 og var frestur til að skila inn athugasemdum til 4. maí 2020.

Laxar eignarhaldsfélag sótti um nýtt rekstrarleyfi fyrir 3.000 tonnum af laxi í Reyðarfirði. Fyrirtækið er fyrir með 6.000 tonna rekstrarleyfi fyrir sjókvíeldi á laxi í Reyðarfirði. Umsókn um rekstrarleyfi var móttekin 3. október 2017.

Hámarkslífmassi eldis fyrirtækisins í Reyðarfirði verður þar með alls 9.000 tonn af laxi sem er innan burðarþolsmats Reyðarfjarðar. Tekið var tillit til áhættumats Hafrannsóknastofnunar við útgáfu rekstrarleyfisins. Starfsemin er einnig háð starfsleyfi Umhverfisstofnunar.

Framkvæmd fyrirtækisins fór í gegnum mat á umhverfisáhrifum í samræmi við lög um mat á umhverfisáhrifum

Heimilt er að kæra ákvörðun Matvælastofnunar um útgáfu rekstrarleyfisins til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og er kærufrestur einn mánuður frá birtingu þessarar auglýsingar.

Ítarefni


Getum við bætt efni síðunnar?