Fara í efni

Útgáfa rekstrarleyfis Fiskeldið Haukamýri ehf. til fiskeldis í Haukamýri við Húsavík

Matvælastofnun hefur veitt Fiskeldið Haukamýri ehf. rekstrarleyfi til fiskeldis í Haukamýri við Húsavík. Matvælastofnun auglýsti tillögu að rekstrarleyfi á vef stofnunarinnar þann 19. desember 2023 og var frestur til að skila inn athugasemdum til 16. janúar 2024.

Fiskeldið Haukamýri ehf. sótti um nýtt rekstrarleyfi vegna 850 tonna hámarkslífmassa í seiða- og matfiskeldi á lax, bleikju og regnbogasilungi í Haukamýri við Húsavík. Umsókn um nýtt rekstrarleyfi var móttekin þann 2. maí 2023. Úttekt starfsstöðvar hefur farið fram og staðfestir Matvælastofnun gildistöku rekstrarleyfis Fiskeldið Haukamýri ehf. FE-1215 í Haukamýri en starfsemin er einnig háð starfsleyfi Umhverfisstofnunar.

Heimilt er að kæra ákvörðun Matvælastofnunar um útgáfu rekstrarleyfisins til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og er kærufrestur einn mánuður frá birtingu þessarar auglýsingar.

Ítarefni


Getum við bætt efni síðunnar?