Fara í efni

Tillaga að rekstrarleyfi Eldisstöðvarinnar Ísþórs til fiskeldis í Þorlákshöfn

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Matvælastofnun hefur unnið tillögu að rekstrarleyfi fyrir Eldisstöðina Ísþór hf. vegna fiskeldis að Nesbraut 25 í Þorlákshöfn. Um er að ræða nýtt rekstrarleyfi fyrir 1.800 tonna hámarkslífmassa vegna seiðaeldis á laxi og regnbogasilungi. Áður var fyrirtækið með rekstrarleyfi fyrir 600 tonna eldi á laxa- og regnbogasilungsseiðum.

Framkvæmd fyrirtækisins fór í gegnum mat á umhverfisáhrifum í samræmi við lög um mat á umhverfisáhrifum.

Athugasemdir við tillöguna skulu vera skriflegar og sendar Matvælastofnun á mast@mast.is. Frestur til að skila inn athugasemdum er til 9. febrúar 2021.

Ítarefni


Getum við bætt efni síðunnar?