Fara í efni

Skortur á dýralæknum á bakvöktum fyrir stórgripi á suðvesturhluta landsins í sumar

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Við skipulagningu bakvakta, í samráð við starfandi dýralækna, hefur ekki tekist að manna fimm bakvaktir í júlí og fimm í ágúst. Um er að ræða bakvaktir fyrir stórgripi og á þetta því ekki við bakvaktir fyrir gæludýr. Að óbreyttu mun því enginn dýralæknir vera á bakvakt fyrir stórgripi á suðvesturhluta landsins dagana 8. júlí, 9. júlí, 10. júlí, 30. júlí og 31. júlí. 1. ágúst, 10. ágúst, 11. ágúst, 12. ágúst og 31. ágúst.

Eigendur stórgripa (hross, nautgripir, sauðfé, svín) sem þurfa á dýralækni að halda er bent á að hafa samband við þá dýralækna sem þeir venjulega hafa skipt við eða aðra almennt starfandi dýralækna á höfuðborgarsvæðinu.

Dýralæknar, sem stunda almennar dýralækningar, eiga rétt á og þeim ber skylda til að taka þátt í vaktafyrirkomulagi sem skipulagt er á viðkomandi vaktsvæði. Til að tryggja velferð dýra og almenna þjónustu við dýraeigendur skal dýralæknir jafnan vera á bakvakt utan venjulegs dagvinnutíma á hverju vaktsvæði, sbr. 3. mgr. Héraðsdýralæknar, hver í sínu umdæmi, skipuleggja bakvaktir í samráði við sjálfstætt starfandi dýralækna sem þar starfa og er heimilt að skipta bakvakt innan sama vaktsvæðis milli fleiri dýralækna samtímis. Þetta er samkvæmt lögum nr. 66/1998 um dýralækna og heilbrigðisþjónustu við dýr.

Ítarefni


Getum við bætt efni síðunnar?