Fara í efni

Óskað eftir dýralæknum á útkallslista

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið, Matvælastofnun og Dýralæknafélag Íslands óska eftir liðsinni dýralækna í bakvarðasveit.

Leitað er að fólki sem hefur aðstæður og er reiðubúið að vera á útkallslista dýralækna og getur hlaupið til með skömmum fyrirvara, eftir því sem aðstæður leyfa.

Fyrirsjáanlegt er að þær aðstæður geti myndast að þörf sé á að kalla til dýralækna víðsvegar um landið til að takast á við mönnunarvanda vegna COVID–19 veirunnar vegna veikindafjarvista eða fjarvista vegna veru í sóttkví.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið hefur útbúið rafrænt skráningarform fyrir þá sem eru reiðubúnir að skrá sig í bakvarðasveitina. Fólki gefst kostur á að skrá sig á listann og er þá klárt til útkalls ef Dýralæknafélag Íslands hefur samband. Greiðslur taka mið af gjaldskrám dýralæknanna sjálfra og greiðir notandi þjónustunnar fyrir hana.

Upplýsingar sem skráðar eru verða vistaðar í gagnagrunni sem er hýstur á gagnasvæði atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins og munu verða nýttar í þeim tilgangi að kalla fólk til tímabundinna starfa vegna COVID-19 veirunnar.

Upplýsingar í grunninum verða aðeins notaðar af atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti, Matvælastofnun sem ríkið rekur og Dýralæknafélagi Íslands, í þeim tilgangi að hafa samband við viðkomandi ef þörf krefur. Skráning í gagnagrunninn byggist á samþykki viðkomandi sem ávallt er hægt að draga til baka.

Gagnagrunnurinn telst eign og er á ábyrgð atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins, Skúlagötu 4, 101 Reykjavík, og verða upplýsingar úr grunninum ekki veittar öðrum en þeim sem viðkomandi hefur samþykkt með skráningu sinni. Hægt er að hafa samband við ráðuneytið í síma 545 9700 eða á tölvupóstfangið anr@anr.is. 

Nánari upplýsingar um vinnslu persónuupplýsinga hjá Stjórnarráði Íslands má finna í persónuverndarstefnu þess, svo sem um varðveislutíma og réttindi eintaklinga

Ítarefni


Getum við bætt efni síðunnar?