Fara í efni

Nýtt rekstrarleyfi Sæbýlis rekstur ehf. til fiskeldis

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Matvælastofnun hefur veitt Sæbýli rekstur ehf. rekstrarleyfi til fiskeldis að Ægisgötu 1 í Grindavík. Matvælastofnun auglýsti tillögu að rekstrarleyfi á vef stofnunarinnar þann 8. febrúar 2022 og var frestur til að skila inn athugasemdum til 8. mars 2022.

Sæbýli rekstur ehf. sótti um nýtt rekstrarleyfi vegna 200 tonna hámarkslífmassa á klak- og matfiskeldi á sæeyrum að Ægisgötu í Grindavík. Umsókn um nýtt rekstrarleyfi var móttekin 3. september 2021. Gildistaka rekstrarleyfis (FE-1188) verður staðfest þegar úttekt Matvælastofnunar hefur farið fram í starfsstöð félagsins. Starfsemin er einnig háð starfsleyfi Umhverfisstofnunar.

Heimilt er að kæra ákvörðun Matvælastofnunar um útgáfu rekstrarleyfis til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og er kærufrestur einn mánuður frá birtingu þessarar auglýsingar.

Ítarefni


Getum við bætt efni síðunnar?