Tillaga að rekstrarleyfi Sæbýlis til fiskeldis í Grindavík
Frétt -
08.02.2022
Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.
Matvælastofnun hefur unnið tillögu að rekstrarleyfi fyrir Sæbýli rekstur ehf. vegna fiskeldis að Ægisgötu 1 í Grindavík. Um er að ræða nýtt rekstrarleyfi með 200 tonna hámarkslífmassa á sæeyrum til klak- og matfiskeldis.
Athugasemdir við tillöguna skulu vera skriflegar og sendar Matvælastofnun á mast@mast.is. Frestur til að skila inn athugasemdum er til 8. mars 2022.
Ítarefni