Fara í efni

Niðurstöður tilboðsmarkaðar með greiðslumark mjólkur

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Við opnun tilboða um kaup og sölu á greiðslumarki mjólkur skv. reglugerð nr. 190/2011 þann 1. nóvember 2012 hefur komið fram jafnvægisverð á markaði  305 kr. fyrir hvern lítra mjólkur.



  • Alls bárust Matvælastofnun 61 tilboð um kaup eða sölu á greiðslumarki. 
  • Fjöldi gildra tilboða um sölu = 14 
  • Fjöldi gildra tilboða um kaup = 47
  • Greiðslumark sem boðið var fram = 1.105.739 lítrar.
  • Greiðslumark sem óskað var eftir = 1.480.279 lítrar.
  • Greiðslumark sem viðskipti ná til eftir opnun tilboða = 1.095.739 lítrar.
  • Kauphlutfall viðskipta er 79,96 % 

Á meðfylgjandi mynd má sjá niðurstöðu tilboðsmarkaðar þann 1. nóvember 2012. Á myndinni er sýnd blá lína framboðs og rauð lína eftirspurnar. Jafnvægisverð sem fram kom á markaðinum reyndist krónur 305 kr/l.

Myndræn framsetning sýnir uppsafnað kaup- og sölumagn við ákveðið verð. Skurðpunktur  línann reynist því aðeins vera niðurstaða á uppboðinu ef ofangreint hlutfall kaup og sölumagns reynist vera jafnt og 1. Sé hlutfallið aftur á móti undir einum þá er skurðpunktur línanna ekki birtingarmynd á jafnvægisverði  né jafnvægismagni.
Niðurstaða uppboðsmarkaðarins nú er að allir seljendur með gild tilboð ná að selja boðið greiðslumark þar sem  uppsafnað magn frá kaupendum reyndist hærra en sölumagn á jafnvægisverði.  Þetta veldur því að sölu- og eftirspurnarlínur skerast ekki en viðskipti verða engu að síður.

 
Þeir sem lögðu inn kauptilboð og buðu verð = 305 kr/líter eða hærra fá nú keypt hlutdeild í því greiðslumarki sem til sölu kemur. 

Þeir sem lögðu inn tilboð um sölu á greiðslumarki á verði sem væri  305,-  kr/líter eða lægra selja nú greiðslumark sitt. 

Samanburður við fyrri markað sem haldinn var 1. apríl 2012 sýnir eftirfarandi:

  • að framboð er nú 226,2 % miðað við það sem boðið var til sölu á síðasta markaði.
  • að eftirspurn eftir greiðslumarki er nú 97,2 % miðað við það sem óskað var eftir á síðasta markað.
  • að verð á greiðslumarki hefur hækkað í krónum talið um 5 kr/líter.

Ítarefni


Getum við bætt efni síðunnar?