Fara í efni

Niðurskurði vegna riðu á Vatnsnesi lokið

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Síðari hluti niðurskurðar á Vatnshóli fór fram í gær. Niðurskurðurinn og flutningur gekk vel og samkvæmt áætlun.

Eins og fram kom í frétt Matvælastofnunar sl. föstudag varð óhapp við flutning hræja úr fyrri niðurskurði til brennslu. Matvælastofnun barst fyrr í þessari viku ábending um að vökvi hafi slest upp úr gámunum á þjóðvegi nr. 1 í Borgarfirði. Matvælastofnun kannaði málið og í kjölfarið fór stofnunin ásamt viðkomandi heilbrigðiseftirliti yfir verklag varðandi flutninginn. Í seinni flutningnum voru úrbætur gerðar til að koma í veg fyrir að slíkt óhapp endurtæki sig. Meðal annars fór flutningurinn fram strax að lokinni aflífun á fénu og minna magn sett í hvern gám.

Smithætta af völdum þess vökva sem barst á þjóðveginn í síðustu viku er lítil að mati Matvælastofnunar, m.a. vegna árstíma og að ekkert fé er á beit auk þess sem þjóðvegur nr. 1 er afgirtur og gott eftirlit er með lausagöngu búfjár á svæðinu. Því er ekki ástæða til að grípa til sérstakra ráðstafana vegna atviksins. Umhverfisáhrif á borð við sólarljós, hita og kulda á víxl óvirkja smitefnið.  Fólki stafar ekki hætta af riðusmitefni.

Að óbreyttu og þegar upp kemur riða hefur Matvælastofnun engan annan kost en að láta flytja allan sóttmengaðan úrgang um langan veg. Brennslustöðin Kalka, sem staðsett er á Suðurnesjum, er eina brennslustöðin á landinu sem hefur starfsleyfi til að taka á móti og brenna riðuhræjum.


Getum við bætt efni síðunnar?