Fara í efni

Netspjall og reiknivél fyrir innflutning hunda og katta

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Matvælastofnun hefur opnað netspjall og reiknivél til að auðvelda dýraeigendum undirbúning innflutnings hunda og katta. Á netspjallinu er spurningum um inn- og útflutning hunda og katta svarað. Reiknivélin tekur mið af útflutningslandi og komudegi og birtir tímasetta áætlun um bólusetningar, sýnatökur og önnur heilbrigðisskilyrði. Jafnframt hafa leiðbeiningar á vef Matvælastofnunar verið uppfærðar og settar í þrep til að leiða innflytjendur í gegnum ferlið skref fyrir skref. 

Netspjallið er eingöngu birt á efnissíðum á vef Matvælastofnunar um inn- og útflutning hunda og katta og eingöngu sýnilegt á opnunartíma stofnunarinnar virka daga kl. 9-12 og 13-15. Inn- og útflytjendum sem hafa samband við stofnunina símleiðis verður vísað á netspjallið. Utan opnunartíma er hægt að beina fyrirspurnum um inn- og útflutning gæludýra á netfangið petimport@mast.is.

Ítarefni


Getum við bætt efni síðunnar?