Fara í efni

Kórónaveiran og framboð fóðurs og áburðar

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Útlit er fyrir að framboð fóðurs og áburðar sé tryggt næstu mánuði í heimsfaraldri vegna COVID-19. Samkvæmt Viðbragðsáætlun vegna heimsfaraldurs er lögð áhersla á að ekki verði rof í vöruflutningnum til og frá landinu og á milli landshluta.

Fóður

Matvælastofnun og Bændasamtökin hafa aflað upplýsinga um stöðu fóðurbirgða og framleiðslu hjá fóðurframleiðendum og endursöluaðilum fóðurs, sem selja fóður til bænda.

Samkvæmt upplýsingunum telja þessi fyrirtæki sig hafa tryggt nægjanleg hráefni til næstu mánaða. Þau stefna á að auka birgðir sínar og eru kornskip væntanleg til landsins í mars og apríl. Framleiðslufyrirtækin hafa tryggt sínar sóttvarnir eins og kostur er til að lágmarka hættu á rofi framleiðslunnar þótt einhverjir starfsmenn veikist. Þau hafa meðal annars takmarkað eða bannað óþarfa heimsóknir á starfsstöðvar fyrirtækjanna. Fyrirtækin hafa aukið framleiðslu sína til að eiga birgðir af tilbúnu fóðri ef þörf er á.

Þau fyrirtæki sem flytja inn tilbúið fóður til endursölu hafa haft samband við framleiðendur fóðursins og fengið upplýsingar um viðbragðsáætlanir þeirra. Svör þeirra eru á þá leið að verksmiðjurnar erlendis hafa gripið til svipaðra varúðarráðstafana og íslensku fyrirtækin.

Þessi fyrirtæki tóku jafnframt fram að samstarf við önnur fyrirtæki yrði tekið upp ef tafir verða á afhendingu fóðurs. Þessi staða er ekki í augsýn nú.

Áburður

Áburðarfyrirtækin sem selja áburð til bænda og ylræktar hafa tryggt sér áburð fyrir sumarið. Hluti áburðarins er nú þegar kominn til landsins. Annar hluti er kominn í skip og er á leið til landsins. Það er verið að útvega skip fyrir það sem eftir er. 

Ekki er séð fram á takmarkanir á flutningum áburðar til bænda þótt svo fari að takmarkanir verði settar á samgöngur.

Ítarefni


Getum við bætt efni síðunnar?