Fara í efni

Endurnýjun rekstrarleyfis til Samherja fiskeldis í Vogum

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Matvælastofnun hefur endurnýjað rekstrarleyfi Samherja fiskeldis ehf. að Stóru-Vatnsleysu í Vogum í samræmi við lög um fiskeldi. Matvælastofnun auglýsti tillögu að rekstrarleyfi á vef stofnunarinnar þann 19. ágúst 2020 og var frestur til að skila inn athugasemdum til 23. september 2020.

Samherji fiskeldi sótti um endurnýjun á rekstrarleyfi vegna 1.600 tonna lífmassa matfiskeldi á laxi, bleikju og regnbogasilungi að Stóru-Vatnsleysu í Vogum. Umsókn um endurnýjun á rekstrarleyfi var móttekin 6. mars 2019. Úttekt starfsstöðvar hefur farið fram og staðfestir Matvælastofnun gildistöku rekstrarleyfis Samherja fiskeldis FE-1154 að Stóru-Vatnsleysu í Vogum en starfsemin er einnig háð starfsleyfi Umhverfisstofnunar.

Heimilt er að kæra ákvörðun Matvælastofnunar um útgáfu rekstrarleyfisins til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og er kærufrestur einn mánuður frá birtingu þessarar auglýsingar.

Ítarefni


Getum við bætt efni síðunnar?