Fara í efni

Leiðrétt tillaga að rekstrarleyfi Samherja fiskeldis ehf. á Vatnsleysuströnd

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Matvælastofnun hefur unnið tillögu að rekstrarleyfi fyrir Samherja fiskeldi ehf. vegna fiskeldis á landi að Stóru-Vatnsleysu á Vatnsleysuströnd. Um er að ræða endurnýjun á eldra rekstrarleyfi án breytinga, 1.600 tonna hámarkslífmassi á laxi, bleikju og regnbogasilungi til matfiskeldis.

Athugasemdir við tillöguna skulu vera skriflegar og sendar Matvælastofnun á mast@mast.is. Frestur til að skila inn athugasemdum er til 23. september 2020.

Ítarefni

Uppfært 26.08.20 kl. 9:23


Getum við bætt efni síðunnar?