Fara í efni

Eftirlitsdýralæknir - Norðausturumdæmi

Viltu taka þátt í að tryggja velferð dýra og standa vörð um matvælaöryggi á Íslandi?

Matvælastofnun óskar eftir því að ráða eftirlitsdýralækni til afleysingastarfa í norðausturumdæmi með aðsetur á Akureyri.

Um er að ræða 50 - 100% starf til 28. febrúar 2026 með möguleika á framlengingu. Æskilegt að umsækjandi geti hafið störf sem fyrst.

Matvælastofnun (MAST) er nútímaleg og framsækin þjónustustofnun sem stendur vörð um hagsmuni og heilsu manna, dýra og plantna og eykur þannig velferð og verðmætasköpun í þágu þjóðarinnar. Starfsumhverfið er fjölskylduvænt og áhersla lögð á starfsánægju og góð samskipti ásamt því að stuðla að öflugu og lifandi þekkingarsamfélagi. Gildin sem starfsfólk hefur að leiðarljósi eru: FAGMENNSKA, GAGNSÆI OG TRAUST.

Nánari upplýsingar um stofnunina er að finna á www.mast.is.

Helstu verkefni og ábyrgð

Eftirlitsdýralæknir sinnir fyrst og fremst eftirliti skv. gildandi lögum og reglugerðum á sviði matvæla, dýraheilbrigðis og dýravelferðar. Einnig sinnir hann heilbrigðiseftirliti í sláturhúsum, samskiptum við opinberar stofnanir ásamt umsjón með tilteknum málaflokkum á verksviði umdæmisskrifstofunnar.

Hæfniskröfur

  • Dýralæknismenntun og gilt dýralæknaleyfi á Íslandi
  • Æskilegt er að umsækjandi hafi reynslu af opinberu eftirliti
  • Þekking og reynsla af opinberri stjórnsýslu er kostur
  • Nákvæmni, frumkvæði og sjálfstæði í starfi
  • Samstarfshæfni og lipurð í mannlegum samskiptum
  • Góð almenn tölvukunnátta
  • Enskufærni málfar og ritun C1 skv. samevrópska tungumálarammanum
  • Íslenskufærni málfar og ritun B2 skv. samevrópska tungumálarammanum æskileg
  • Bílpróf skilyrði

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Dýralæknafélag Íslands hafa gert.

Umsókn skal fylgja starfsferilsskrá, afrit af prófskírteini og kynningarbréf. Öllum umsóknum verður svarað þegar ráðning liggur fyrir.

Vakin er athygli á því að umsóknir gilda í sex mánuði nema umsækjandi ákveði annað. Launakjör eru samkvæmt gildandi kjarasamningi fjármálaráðherra og Dýralæknafélags Íslands.

Starfshlutfall er 50-100%

Sótt er um starfið á Starfatorgi

Umsóknarfrestur er til og með 06.10.2025

Nánari upplýsingar veitir

Nánari upplýsingar um starfið veitir Sif Sigurðardóttir, héraðsdýralæknir norðausturumdæmi

Tölvupóstur: sif.sigurdardottir@mast.is

Sími: 530 4800


Getum við bætt efni síðunnar?