Fara í efni

Eftirlitsfulltrúar í sauðfjárslátrun á Húsavík

Viltu taka þátt í að standa vörð um matvælaöryggi og velferð dýra?

Matvælastofnun óskar eftir að ráða eftirlitsfulltrúa til starfa við heilbrigðiseftirlit í sauðfjárslátrun á komandi hausti. Um er að ræða tímabundin störf í u.þ.b. tvo mánuði í sláturhúsi Norðlenska á Húsavík. Athygli er vakin á að Matvælastofnun getur útvegað húsnæði yfir starfstímabilið.

Störfin henta vel þeim sem hafa þekkingu og reynslu af landbúnaðarstörfum en eftirlitsfulltrúar fá kennslu og þjálfun sem fer fram undir lok ágústmánaðar. Eftirlitsfulltrúar munu einnig eiga möguleika á að bæta við sig þjálfun varðandi heilbrigðiseftirlit í alifuglasláturhúsum.

Matvælastofnun (MAST) er nútímaleg og framsækin þjónustustofnun sem stendur vörð um hagsmuni og heilsu manna, dýra og plantna og eykur þannig velferð og verðmætasköpun í þágu þjóðarinnar. Nánari upplýsingar er að finna á www.mast.is

Helstu verkefni og ábyrgð
Eftirlitsfulltrúi sinnir fyrst og fremst opinberu eftirliti með heilbrigðisskoðun á kjötskrokkum, dýravelferð og hollustuháttum. Eftirlitsfulltrúar starfa undir ábyrgð og handleiðslu eftirlitsdýralækna viðkomandi sláturhúsa.

  • Hæfniskröfur
    Reynsla af sláturhúsastörfum æskileg
  • Reynsla af umgengni við búfé æskileg
  • Góðir skipulags- og samskiptahæfileikar
  • Nákvæmni, frumkvæði, fagleg vinnubrögð og sjálfstæði í starfi
  • Áhugi á matvælaöryggi og dýraheilbrigði
  • Góð almenn tölvukunnátta
  • Íslenskufærni A2 skv. samevrópska tungumálarammanum æskileg
  • Enskufærni B1 skv. samevrópska tungumálarammanum æskileg

Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sameyki hafa gert.

Umsókn skal fylgja starfsferilskrá, prófskírteini og stutt kynningarbréf. Öllum umsóknum verður svarað þegar ráðning liggur fyrir.

Um dagvinnu er að ræða í september og október. Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 31.07.2025

Nánari upplýsingar veitir
Freydís Dana Sigurðardóttir, freydis.sigurdardottir@mast.is, sími: 530-4800

Sótt er um starfið hér: https://island.is/starfatorg/x-42812


Getum við bætt efni síðunnar?