Fara í efni

Vörslusvipting á hundi vegna vanhirðu

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Matvælastofnun hefur tekið hund úr vörslu eiganda á höfuðborgarsvæðinu. Hundurinn var tjóðraður langtímum saman og fékk ekki þá útivist og hreyfingu sem honum var talin nauðsynleg. Hann var meðal annars í mikilli yfirþyngd sem metin var hættuleg heilsu hans. Ekki hafði verið brugðist við ítrekuðum kröfum stofnunarinnar um úrbætur.

Ákvörðun Matvælastofnunar byggir á fjórum eftirlitsheimsóknum á árinu sem sýndu versnandi ástand, án þess að kröfur stofnunarinnar um úrbætur væru virtar. Hundurinn fékk litla sem enga hreyfingu eða útiveru aðra en þá að vera bundinn úti í garði í stuttu bandi. Einnig var holdastuðull hundsins kominn í hæsta flokk þannig að það takmarkaði mjög hreyfigetu og var talið ógna heilsu hans. Kröfum stofnunarinnar um heilsufarsskoðun á hundinum hjá dýralækni  var heldur ekki sinnt.


Í reglugerð um velferð gæludýra segir meðal annars að „umráðamenn gæludýra skulu afla sér þekkingar á eðli og eiginleikum dýra sem þeir halda til að geta uppfyllt þarfir þeirra“ og að „sérhver hundur skuli hafa tækifæri til að komast út daglega til að geta sinnt eðlilegum þörfum sínum og fá þá hreyfingu sem nauðsynlegt er tegundinni.“ Þá er „aðeins heimilt að tjóðra hund ef nauðsyn ber til og þá einungis undir eftirliti í skamman tíma og þannig að hundinum stafi ekki hætta af“. „Gæta skal þess að gæludýr sé í eðlilegum holdum skv. viðauka III.“ 


Skv. 37 gr. lögum um velferð dýra er Matvælastofnun heimilt að taka ákvörðun um að svipta umráðamann dýra vörslu þeirra, ef aðilar sinna ekki fyrirmælum innan tilgreinds frests, og sér Matvælastofnun um framkvæmd vörslusviptingar.


Hundinum hefur verið komið fyrir á fósturheimili Dýrahjálpar og þakkar Matvælastofnun samtökunum fyrir aðkomu þeirra að málinu.


Getum við bætt efni síðunnar?