Fara í efni

Varað við neyslu á kræklingi úr Hvalfirði

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Matvælastofnun varar við tínslu á kræklingi úr Hvalfirði. DSP þörungaeitur greindist yfir viðmiðunarmörkum í honum.

Fulltrúi Matvælastofnunar safnaði kræklingi 4. maí s.l. við Fossá í Hvalfirði. Tilgangurinn var að kanna hvort almenningi sé óhætt að tína krækling í Hvalfirði. Niðurstöður mælinga leiddu í ljós að DSP þörungaeitur var 260 µg/kg í kræklingum og er það yfir viðmiðunarmörkum, sem eru 160 µg/kg.  Þar sem magn DSP er svona mikið má búast við að DSP eitur í kræklingi verði viðvarandi í sumar.  

DSP þörungaeitur í kræklingi getur valdið kviðverkjum, niðurgangi, ógleði og uppköstum. Einkenni koma fram fljótlega eftir neyslu og líða hjá á nokkrum dögum. 

Neytendur hafa ekki ástæðu til að varast krækling (bláskel) sem ræktaður er hérlendis og er á markaði í verslunum og veitingahúsum. Innlend framleiðsla á kræklingi er undir eftirliti Matvælastofnunar. Reglulega eru tekin sýni af skelkjöti og sjó til að fylgjast með magni eitraðra þörunga í sjó og hvort skelkjötið innihaldi þörungaeitur. 


Getum við bætt efni síðunnar?