Vanmerkur ofnæmis- og óþolsvaldur í osti
Frétt -
30.08.2024
Matvælastofnun varar við einni framleiðslulotu af vanmerktum Mexíkóosti frá Mjólkursamsölunni en mistök voru á merkingu á ostinum þannig að ekki er merktir ofnæmis- og óþolsvaldar ( soja og sinnepsfræ). Fyrirtækið hefur í samráði við Matvælastofnun innkallað vöruna sem er í dreifingu um allt land.
Einungis er verið að innkalla eftirfarandi framleiðslulotu:
- Vöruheiti: Mexíkóostur 150 g
- Framleiðandi: MS Akureyri
- Rétt strikamerki: 5690516060657
Rangur bakmiði: Vöruheiti: Piparostur 150 g Strikamerki: 5690516060558 - Best fyrir dagsetning: 26.01.2025
- Dreifing: Verslanir um allt land
Neytendum sem keypt hafa vöruna með framangreindri dagsetningu er bent á að þeir geta skilað vörunni í þá verslun þar sem hún var keypt eða snúið sér beint til Mjólkursamsölunnar.
Ítarefni
- Fréttatilkynning frá Mjólkursamsölunni
- Listi Matvælastofnunar yfir innkallanir
- Neytendavakt Matvælastofnunar á Facebook