Fara í efni

Vanmerktir ofnæmisvaldar í ungbarna- og stoðmjólk

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Matvælastofnun hefur fengið upplýsingar frá Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur um innköllun á ungbarna- og stoðmjólk sem Ölgerðin flytur til landsins og dreifir. Vegna mistaka var límmiði með íslenskum notkunarleiðbeiningum límdur yfir innihaldslýsingar Nestlé Nan 1 og Nan 2 ungbarna- og stoðmjólkur með þeim afleiðingum að upplýsingar um ofnæmis- og óþolsvalda (fiskolía (lýsi) og sojalesitín) voru ekki sýnilegar á umbúðunum. Vörurnar hafa verið innkallaðar og merkingar lagaðar.

  • Vöruheiti: Nestlé Nan 1 og Nan 2
  • Innflytjandi: Ölgerðin Egill Skallagrímsson ehf. Grjóthálsi 7-11, 110 Reykjavík
  • Nettóþyngd: 200ml fernur
  • Dreifing um allt land.

Ítarefni


Getum við bætt efni síðunnar?