Fara í efni

Vanmerktir ofnæmis- og óþolsvaldar í lasagna

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Matvælastofnun hefur fengið upplýsingar frá matvælaeftirliti Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur um stöðvun sölu og innköllun af markaði  á "Lasagne ferskt", merkt Krónunni, þar sem ofnæmis- og óþolsvaldur er ekki merktur á umbúðum vörunnar.



    
Vöruheiti:  "Lasagne ferskt", merkt Krónunni.     
Ábyrgðaraðili; framleiðandi, innflytjandi og/eða dreifingaraðili:  Vörurnar eru framleiddar af Gæðakokkum, Borgarnesi, fyrir Krónuna, Bíldshöfða 20, 110 Reykjavík.
Auðkenni/skýringartexti:  Afurðir úr korni sem inniheldur glúten eru ekki merktar á umbúðum "Lasagne ferskt", merkt Krónunni.  Að auki eru gerðar ýmsar aðrar athugasemdir við merkingar vörunnar.  Strikanúmer 2204532011253.   
Laga- /reglugerðarákvæði:  13. gr. reglugerðar nr. 503/2005 um merkingu matvæla, með síðari breytingum, 8. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli, með síðari breytingum.  Einnig 5. gr., 7. tl. 6. gr., 8. gr. og 20. gr. reglugerðar nr. 503/2005, reglugerð nr. 410/2009 um merkingu næringargildis matvæla, með síðari breytingum, 30. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli.  

Áætluð dreifing innanlands:  Verslanir Krónunnar um land allt


Ítarefni




Getum við bætt efni síðunnar?