Fara í efni

Vanmerktur ofnæmis- og óþolsvaldur í sælgæti

Matvælastofnun varar þá sem hafa ofnæmi-eða óþol fyrir heslihnetum við neyslu á einni framleiðslulotu af Nóa Kropp 200 g sem Nói og Siríus framleiðir. Fyrirtækið hefur innkallað sælgætið í samráði við heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur.

Innköllunin á eingöngu við eftirfarandi framleiðslulotu:

  • Vörumerki: Nóa Kropp
  • Vöruheiti: Súkkulaðihúðaðar maískúlur
  • Geymsluþol: Best fyrir dagsetning: 28. maí 2025
  • Nettómagn: 200 g
  • Framleiðandi: Nói Siríus, Hesthálsi 2-4, 110 Reykjavík
  • Framleiðsluland: Ísland
  • Heiti og heimilisfang fyrirtækis sem innkallar vöru: Nói Siríus, Hesthálsi 2-4, 110 Reykjavík.
  • Dreifing: Verslanir um land allt

Neytendum, með ofnæmi eða óþol, sem keypt hafa vöruna er bent á að neyta hennar ekki og skila hennar til fyrirtækisins eða farga henni.

Ítarefni


Getum við bætt efni síðunnar?