Fara í efni

Vanmerkt krydd

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Matvælastofnun varar við neyslu á tveimur tegundum af Gulcan kryddum vegna vanmerkinga varðandi tungumál og ofnæmisvalda ( sinnep og sesam) sem fyrirtækið Istanbul market flytur inn og selur í verslun sinni. Fyrirtækið, í samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur, hefur innkallað vörurnar og sent út fréttatilkynningu.

Innköllunin á við um allar framleiðslulotur og best fyrir dagsetningar:

  • Vörumerki: Gulcan
  • Vöruheiti: Grill/Mangal Baharati (Grill/BBQ Wurzsalz, Grill/BBQ Kruiden)
  • Geymsluþol: Allar best fyrir dagsetningar
  • Lotunúmer: Allar lotur
  • Strikamerki: 8717552025680
  • Nettómagn: 150 g
  • Upprunaland: Þýskaland

________________________________________________________________________________

  • Vörumerki: Gulcan
  • Vöruheiti: Arjantin Mix
  • Geymsluþol: Allar best fyrir dagsetningar
  • Lotunúmer: Allar lotur
  • Strikamerki: 8717552025888
  • Nettómagn: 150 g
  • Upprunaland: Þýskaland

Vörunum er dreift  í verslun Istanbul market, Grensásveg 10

arjantin mix kryddgrill mangal

Neytendur, sem keypt hafa þessar vörur, eru beðnir að neyta þeirra ekki og geta skilað þeim gegn endurgreiðslu til verslunarinnar. Vörurnar eru skaðlausar fyrir þá sem hafa ekki ofnæmi fyrir sesam eða sinnepi. Nánari upplýsingar er hægt að fá á netfanginu istanbulmarket.is@gmail.com.

Ítarefni

 

 


Getum við bætt efni síðunnar?