Fara í efni

Útgáfa rekstrarleyfis vegna fiskeldis til Arnarlax hf. í Þorlákshöfn

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Matvælastofnun hefur veitt Arnarlax hf. breytt rekstrarleyfi til fiskeldis að Laxabraut 5, Þorlákshöfn. Matvælastofnun auglýsti tillögu að breyttu rekstrarleyfi á vef stofnunarinnar þann 11. febrúar 2022 og var frestur til að skila inn athugasemdum til 11. mars 2022.

Arnarlax sótti um breytingu á rekstrarleyfi vegna seiða- og matfiskeldis að Laxabraut 5, Þorlákshöfn. Breytingin felur í sér að bæta við laxi sem tegund og hafa þannig leyfi til þess að ala bæði lax og bleikju í seiða- og matfiskeldi að Laxabraut 5.

Umsókn um breytingu á núverandi rekstrarleyfi var móttekin þann 3. nóvember 2021. Úttekt starfsstöðvar hefur farið fram og staðfestir Matvælastofnun gildistöku rekstrarleyfis Arnarlax, FE-1179, en starfsemin er einnig háð starfsleyfi Umhverfisstofnunar. Gildistími rekstrarleyfisins helst óbreyttur í samræmi við 24. gr. reglugerðar nr. 540/2020 og er til 12. júlí 2037.

Heimilt er að kæra ákvörðun Matvælastofnunar um útgáfu rekstrarleyfisins til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og er kærufrestur einn mánuður frá birtingu þessarar auglýsingar.

 Ítarefni


Getum við bætt efni síðunnar?