Fara í efni

Útgáfa rekstrarleyfis til fiskeldis Arctic Sea Farm hf. við Snæfjallaströnd í Ísafjarðardjúpi

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Matvælastofnun hefur veitt Arctic Sea Farm hf. rekstrarleyfi til fiskeldis við Snæfjallaströnd í Ísafjarðardjúpi í samræmi við lög um fiskeldi. Matvælastofnun auglýsti tillögu að rekstrarleyfi á vef stofnunarinnar þann 22. maí 2020 og var frestur til að skila inn athugasemdum til 22. júní 2020.

Arctic Sea Farm hf. sótti um nýtt rekstrarleyfi fyrir 5.300 tonna hámarkslífmassa af regnbogasilungi við Snæfjallaströnd í utanverðu Ísafjarðardjúpi og rúmast eldið innan burðarþolsmats Ísafjarðardjúps. Fyrirtækið er fyrir með rekstrarleyfi við Snæfjallaströnd sem heimilar 200 tonna framleiðslu í sjókvíaeldi á laxi og regnbogasilungi en það fellur úr gildi á sama tíma og nýtt rekstrarleyfi tekur gildi. Umsókn um nýtt rekstrarleyfi var móttekin 20. október 2016. Starfsemin er einnig háð starfsleyfi Umhverfisstofnunar.

Framkvæmd fyrirtækisins er ekki matsskyld skv. ákvörðun Skipulagsstofnunar í samræmi við lög um mat á umhverfisáhrifum

Heimilt er að kæra ákvörðun Matvælastofnunar um útgáfu rekstrarleyfisins til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og er kærufrestur einn mánuður frá birtingu þessarar auglýsingar.

Ítarefni


Getum við bætt efni síðunnar?