Fara í efni

Útgáfa rekstrarleyfis til fiskeldis að Núpsmýri í Öxarfirði

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Matvælastofnun hefur veitt Samherja fiskeldi ehf. rekstrarleyfi til fiskeldis á landi að Núpsmýri í Öxarfirði í samræmi við lög um fiskeldi. Matvælastofnun auglýsti tillögu að rekstrarleyfi á vef stofnunarinnar þann 20. maí 2020 og var frestur til að skila inn athugasemdum til 20. júní 2020.

Samherji fiskeldi sótti um breytingu á rekstrarleyfi fyrir 3.000 tonna lífmassa seiða- og matfiskeldi á laxi og bleikju að Núpsmýri í Öxarfirði. Fyrirtækið var áður með rekstrarleyfi fyrir 1.600 tonna framleiðslu á laxi, bleikju, sandhverfu og lúðu. Umsókn um breytingu rekstrarleyfis var móttekin 12. desember 2017. Úttekt starfsstöðvar hefur farið fram og staðfestir Matvælastofnun gildistöku rekstrarleyfis Samherja fiskeldis FE-1142 að Núpsmýri í Öxarfirði en starfsemin er einnig háð starfsleyfi Umhverfisstofnunar.

Framkvæmd fyrirtækisins er ekki matsskyld skv. ákvörðun Skipulagsstofnunar í samræmi við lög um mat á umhverfisáhrifum.

Heimilt er að kæra ákvörðun Matvælastofnunar um útgáfu rekstrarleyfisins til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og er kærufrestur einn mánuður frá birtingu þessarar auglýsingar.

Ítarefni


Getum við bætt efni síðunnar?