Fara í efni

Tillaga að rekstrarleyfi Samherja fiskeldis að Núpsmýri í Öxarfirði

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Matvælastofnun hefur unnið tillögu að rekstrarleyfi fyrir Samherja fiskeldi ehf. vegna fiskeldis á landi að Núpsmýri í Öxarfirði. Um er að ræða stækkun á eldra rekstrarleyfi úr 1.600 tonnum af laxi, bleikju, sandhverfu og lúðu í 3000 tonna seiða- og matfiskeldi á laxi og bleikju.

Athugasemdir við tillöguna og fylgigögn skulu vera skriflegar og sendar Matvælastofnun. Frestur til að skila inn athugasemdum er til  20. júní 2020.

Ítarefni


Getum við bætt efni síðunnar?