Útgáfa rekstrarleyfis Laxey hf. til fiskeldis í Viðlagafjöru, Vestmannaeyjum
Frétt -
21.06.2024
Matvælastofnun hefur veitt Laxey hf. rekstrarleyfi til fiskeldis á landi í Viðlagafjöru í Vestmannaeyjum. Um er að ræða nýtt rekstrarleyfi fyrir 7.000 tonna hámarkslífmassa vegna matfiskeldis á laxi og regnbogasilungi.
Laxey hf. sótti um nýtt rekstrarleyfi fyrir 7.000 tonna hámarkslífmassa matfiskeldi á laxi og regnbogasilungi í Viðlagafjöru í Vestmannaeyjum. Umsókn um nýtt rekstrarleyfi var móttekin þann 2. mars 2023. Starfsemin er einnig háð starfsleyfi Umhverfisstofnunar.
Heimilt er að kæra ákvörðun Matvælastofnunar um útgáfu rekstrarleyfisins til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og er kærufrestur einn mánuður frá birtingu þessarar auglýsingar.
Ítarefni