Fara í efni

Útgáfa rekstrarleyfis Bleikju ehf. til fiskeldis að Laugum, Rangárþingi ytra

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Matvælastofnun hefur veitt Bleikju ehf. rekstrarleyfi til fiskeldis að Laugum í Rangárþingi ytra. Matvælastofnun auglýsti tillögu að rekstrarleyfi á vef stofnunarinnar þann 6. mars 2023 og var frestur til að skila inn athugasemdum til 3. apríl 2023.

Bleikja ehf. sótti um nýtt rekstrarleyfi vegna 100 tonna hámarkslífmassa í seiða- og mateldi á lax, bleikju og regnbogasilungi að Laugum. Umsókn um nýtt rekstrarleyfi var móttekin þann 20. Janúar 2021. Úttekt starfsstöðvar hefur farið fram og staðfestir Matvælastofnun gildistöku rekstrarleyfis Bleikju ehf. FE-1208 að Laugum en starfsemin er einnig háð starfsleyfi Umhverfisstofnunar.

Heimilt er að kæra ákvörðun Matvælastofnunar um útgáfu rekstrarleyfisins til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og er kærufrestur einn mánuður frá birtingu þessarar auglýsingar.

Ítarefni


Getum við bætt efni síðunnar?